31 ágúst 2014

Frestun lokahófs vegna veðurs

Sæl öll,
Vegna mikils vatnsveðurs og vinda hefur verið tekin ákvörðun um að fresta lokagleðinni okkar sem til stóð að halda með 6. flokk í dag klukkan 16:00. Ákvörðun verður tekin um nýja dagsetningu fljótlega. 
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort leik KR og Stjörnunnar verður frestað en fólk er beðið um að fylgjast með á heimasíðu KR www.kr.is  eða heimasíðu KSÍ.
 Áfram KR

2 ummæli:

  1. Leikurinn fer fram, fara þá strákarnir ekki pottþétt inná völl fyrir leik?

    Kveðja Matti

    SvaraEyða
  2. Já hvernig er það, fara strákarnir ekki inn á völlinn? Kv Theodora

    SvaraEyða