Fyrir hönd þjálfaranna vil ég þakka öllum leikmönnum,foreldrum og öðrum sem komu að mótinu innilega fyrir helgina og vona ég að allir hafi skemmt sér jafn vel og við.
Takk.
Það verður æfing á morgun mánudag en það verður enginn fúll ef menn mæta ekki:)
KR kveðjur Atli Jónasson
22 júní 2014
19 júní 2014
Gisting- tjaldsvæði og leikjaplan föstudagsins MJÖG mikilvægt
Frekari upplýsingar hafa borist frá Akranesi mikilvægt að lesa þennan póst vel.
ATH minni á að mæting er klukkan 8:00 á föstudag út í Frostaskjól og fer rútan klukkan 8:30. Liðin sitja saman í rútu til að auðvelda fylgdarmönnum eftirlit. Ríkisklæðnaður verður í skrúðgöngu. KRreyjur, svartar peysur (allir sem einn eða flís) KR húfa eða buff og svartar buxur.
Hvet alla til að renna yfir Tékklista (vatnsbrúsi t.d. mikilvægur) þegar þið farið að pakka fyrir strákana. Gaman að leyfa þeim að taka þátt í pökkun. Tékklista má finna í pósti frá því á sunnudag og á bloggsíðunni hér http://kr7flokkur.blogspot.com
Uppfærð símaskrá er í viðhengi. Þar má finna símanúmer liðsmanna, þjáflara og nokkurra í foreldrafélagi. Við munum reyna að aðstoða eftir þörfum. Mikilvægt fyrir sérstaklega næturverði að hafa útprentaða símaskrá J.
Gisting
KR hefur fengið úthlutað gistingu í Brekkubæjarskóla (fjær mótsvæði) KR er staðsett á þriðju hæð í stofum nr. 307, 308, 309 og 310. Mögulega ef stærðarmunur er á stofum verður þessu breytt lítillega.
KR1 og KR2 verða í stofu 307
KR3 og KR5 í stofu 308
KR 4 og KR 6 í stofu 309
KR 7 og KR 8 í stofu 310.
Kostur við þessa staðsetningu er að liðin borða morgunmat á staðnum. Sérstakur strætó gengur alla helgina frá mótsvæði og í skóla á 30 mín fresti og er frítt í strætó fyrir mótsgesti alla.
Fylgdarmenn í rútu bera ábyrgð á sínum drengjum þar til foreldrar mæta á gististaði.
Tjaldsvæði
KR hefur fengið úthlutað tjalsvæði nálægt keppnissvæðinu. Safnaflöt heitir svæðið (sjá kort bls. 14 í handbók ) það eru tjaldverðir sem vísa leiðina þegar þangað er komið. Tjaldsvæðið opnar á morgun fimmtudag klukkan 18:00. Það eru fleiri lið á sama svæði og KR, t.d. deilir svæði með Aftureldingu, Keflavík og HK svo það er um að gera að mæta tímanlega .
Tjaldsvæðið er troðfullt svo óheimilt er að leggja bílum inn á svæðinu. Plássið verður að nýta mjög vel.
Leikjaplan föstudagsins
Leikjaplan föstudagsins er meðfylgjandi. Það er dálítið flókið að lesa út úr þessu og til að auðvelda (vonandi) höfum við stillt þessu upp svona:
KR1 er A lið í U riðli skammstöfun Au2
KR2 er A lið í K riðli skammstöfun Ak1
KR3 er B lið í J riðli skammstöfun Bj1
KR4 er D lið í U riðli skammstöfun Du3
KR5 er í C lið í K riðli skammstöfun Ck1
KR6 er í E lið í F riðli skammstöfun Ef4
KR7 er í E lið í S riðli skammstöfun Es2
KR 8 er í F lið í J riðill skammstöfun Fj3
Skammstöfun liða þar sem stór stafur táknar lið og lítill stafur riðil, ræður svo hvar þau raðast í mat sjá bls. 7 í þessu skjali. Dæmi. KR8 er með skammstöfun Fj3 og á því matmálstíma á föstudagskvöldinu klukkan 18:30. KR2 er aftur með skammstöfun Ak1 og á því matmálstíma klukkan 17:30. Á sama hátt hafa liðin fengið úthlutað tíma í myndatöku sjá bls.8 Liðstjórar passa að prenta út og taka leikjaskipulag föstudagsins með sér útprentað. Við verðum þó með auka eintök ef einhver gleymir.
Úrslit föstudagsins ráða svo niðurröðun á laugardag og bera liðstjórar ábyrgð á að fylgjast með úrslitum á föstudag. Við getum vonandi hengt upp á gististað leikjaplan laugardagsins.
Tímasetningar:
Mikilvægt er að virða allar tímasetningar vel það á ekki bara við um leiki heldur einnig mætingu í mat og í liðsmyndatöku svo dæmi sé tekið sbr. það sem kemur fram hér að framan. Liðstjórar hvers liðs bera ábyrgð á þessum þætti. Liðin hafa fengið úthlutað ákv. tímum í mat á föstudeginum og í liðsmyndatöku. Vinsamlegast virðið þessi tímamörk vel.
Matarmiðar
Matarmiðar fyrir foreldra/ liðstjóra verða afhendir liðstjórum hvers liðs á föstudag á mótssetningu.
Að lokum
Við erum fyrst og fremst komin á Akranes til að eyða helginni með fótboltahetjum framtíðarinnar, fjölskyldum og vinum. Höfum gleðina og jákvæðni að leiðarljósi. Hrós er besta leiðin til að byggja upp sjálfstraust það á líka við í mótlæti.
Liðið tekur þátt í mótinu sem ein heild. Höldum hópinn vel. Hvetja liðið áfram ekki bara ykkar strák. Þetta er samvinna liðsins og eins og við þekkjum er hvert hlutverk innan vallar jafn mikilvægt.Leikirnir vinnast með samvinnu og liðsheild (og liðstjórn að sjálfssögðu) strákarnir finna þegar þeir fá jákvæðan stuðning og það hjálpar þeim að berjast og hvetur þá áfram. Allir gera sitt besta. Aðalatriðið er að hafa gaman að.
Látið þjálfar og liðstjóra um að stýra liðinu. Það er erfitt að vita hvað maður á að gera inn á vellinum ef 10 foreldrar kalla 10 mismunandi skilaboð. Við köllum Áfram KR og koma KR og berjast KR og syngjum KR stuðningsmannalög eins og enginn sé morgundagurinn.
Að leik loknum er ágætt að spyrja hvort það hafi verið gaman ekki endilega úrslitin J ungmennafélagsandinn og smá baráttuandi með er ágætis blanda.
Veðurspáin er þokkaleg svo við verðum með sól og gleði í hjarta alla helgina.
Hlakka til að eyða helginni með ykkur öllum.
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband. Öll mikilvæg númer eru að finna í símaskránni góðu.
Einnig hægt að skoða þennan link mótsins https://docs.google.com/file/ d/ 0BwlFJS9PGtwoaWk1SVdhZVoxcDA/ edit þar má finna flest allar þessara upplýsinga.
Sjáumst í Frostaskjóli á föstudagsmorgun.
ÁFRAM KR
Undirbúningsnefndin
17 júní 2014
Norðurálsmót-upplýsingar
Inngangur
Hér á eftir fara upplýsingar sem gott er að renna yfir fyrir
Norðurálsmótið. Margir drengir eru að fara í fyrsta sinn á sitt stórmót, fyrir
flesta þeirra er þetta hápunktur sumarsins. Gott skipulag og samvinna foreldra
skiptir því miklu máli til þess að gera megi þessa helgi ógleymanlega fyrir
litlu KR-ingana okkar. Tökum höndum
saman foreldrar og forráðamenn, sýnum
gott fordæmi tökum gleðina og góða skapið með á Akranesið og við skulum verða
drengjunum okkar og KR til sóma.
Slagorðið Allir sem einn verður haft
að leiðarljósi.
Hvernig skiptist
kostnaður
Heildarkostnaður fyrir hvern dreng er 17.000 kr. Kostnaðurinn skiptist þannig að 13.000 kr. er þátttökugjald upp á Akranes. Innifalið í
þátttökugjaldinu er;
·
Gisting
í skólanum
·
Þátttaka
í 9 leikjum
·
Matur;
kvöldmatur x2 morgunmatur x2 hádegismatur x1 og pulsugrillveisla í mótslok,
·
Kvöldvaka
á laugardagskvöldinu
·
Verðlaun
medaliur og bikarar
·
Sund
Restin, 4000 kr. á
dreng, er því til að kaupa sameiginlegt nesti fyrir alla helgina;
staðfestingargjald upp á Skaga var greitt í febrúar; matarmiðar fyrir 2
foreldra í hverju liði; rúta; matur fyrir þjálfara eða sjá til þess að þeir fái
eitthvað að borða.
Ef það verður afgangur þá stefnum við á að hittast í
grillveislu í lok sumars, leika saman og hafa gaman.
3. Dagskrá
Sendi dagskrá miðað við þær upplýsingar sem við höfum í dag.
Dagskrá (gróf) kann að breytast lítillega.
Föstudagur 20. júní
8:00
mæting út í KR Frostaskjóli
8:30 Rúta leggur af stað upp á Akranes með 73 drengi innanborðs og
c.a. 20 forelda
9:30 Gert er ráð fyrir að foreldrar hitti
drengina á gististöðum, komi sér fyrir í stofum og græi strákana í
skrúðgönguna. Allir eiga að mæta í KR treyjunum sínum. Svartar flíspeysur eða Allir
sem einn peysa og KR buff eða KR húfa er „æskilegur“ klæðnaður .
11:15 Skrúðganga frá bæjarskrifstofunum beint á móti
Krónunni. Allir KR-ingar þramma saman með foreldrum/fjölskyldum sínum.
12:00 Setning í Akraneshöll KR-ingar halda sig
saman „Allir sem einn“.
ATH ekki er boðið upp á
hádegisverð á föstudeginum. Nestisnefndin þarf því að gera ráð fyrir samlokum
og ávöxtum í hádeginu á föstudag.
13:00 -16:00 Keppni hefst. Tilkynnt verður seinna í vikunni um
leið og það liggur fyrir hvenær liðin byrja að spila (Annað hvort lið 1-4 eða
5-8). Frjáls tími hjá hinum hópnum. Um leið og leikjadagskrá liggur fyrir
verður hún send út.
16:00- 19:00 Keppni hefst. Hjá annað hvort liðum 1-4 eða 5-8.
Frjáls tími hjá hinum hópnum á meðan.
Kvöldmatur er frá 17:30- 20:00. Allt eftir því
hvort liðin eru að spila í fyrra eða seinna holli. Liðin fá úthlutuðum
matmálstímum eftir því hvenær þau keppa.
21:00 Kvöldkaffi. KR á gististað ávextir
Laugardagur 21. Júní
7:00-8:45 Morgunmatur
8:20-18:00 Leikir dagsins, 4 leikir á lið.
Liðstjórar fylgjast með hvenær liðin spila + matartíma. Tímasetning leikja
raðast eftir úrslitum föstudagsins.
11:30-13:45 Hádegismatur í matsalur
íþróttamiðstöðvar.
17:40-18:10 Kvöldmatur í matsal
íþróttamiðstöðvar.
19:30-20:30 Kvöldvaka.
21:00 Kvöldkaffi KR á gististað.
Sunnudagur 22. Júní
7:00-8:45 Morgunmatur á gististað
8:20-13:00 Leikir dagsins. Úrslit - 1 leikur á
lið. Liðstjórar fylgjast með hvenær liðin spila + matartíma
11:30-13:45 Pylsugrillveisla
14:00-15:00 Mótsslit og verðlaunaafhending
Keppnin sjálf
Föstudagurinn fer í það að í raun raða liðunum í rétta
styrkleikaflokka. Úrslit föstudagsins munu ráð því hvar liðin lenda á
laugardegi. Það er skipt í nokkrar deildir, enska, íslenska, spænska, þýska og
portúgalska og svo A, B, C, D innan hverrar deildar. Verðlaun eru veitt á
sunnudegi fyrir sigurvegara hverrar deildar innan hvers riðils svo talsvert
miklir möguleikar eru á bikar J.
Nestismálin
Sameiginlegt nesti er til staðar fyrir drengina. Í boði
verður brauð, skinka og ostur fyrir samkolur. Safar, ávextir og grænmeti auk
þess sem hvert lið fær Sviss Miss til þess að blanda kakó ef það verður kalt.
Nestið er fyrst og fremst hugsað sem auka og millimál og sér nestisnefnd hvers
liðs um að smyra nesti og sjá til þess að enginn liðsmaður sé svangur. Nestis
“startpakki“ verður afhentur hverju liði á gististöðum á föstudagsmorgni. Gert
er ráð fyrir óhollu sameiginlegu kvöldkaffi á laugardagskvöldinu eftir kvöldvöku.
Gisting fyrir foreldra
tjaldsvæði
Það fer eftir fjölda tjalda, fellihýsa og húsabíla hvar við
fáum úthlutuðu tjaldstæði og hversu stóru plássi. Upplýsingar voru sendar upp á
Akranes fyrir helgina. Við sendum ykkur nánari upplýsingar um leið og þær
liggja fyrir. Þeir sem ekki gista á tjaldsvæði eru ýmist í sumarhúsum, í
heimahúsum eða keyra á milli, sem sagt valkvætt.
Hlutverk foreldra
Liðstjóri Ágætt að miða við 2 liðstjóra á
hvert lið svo þeir geti skipt með sér verkum. Hlutverkið er afar mikilvægt og
snýst fyrst og fremst um það að halda liðinu saman og passa upp á að allir mæti
á réttum tíma í leiki. Liðstjórar eru aðstoðarmenn þjálfara og halda utan um
leikjaplan hvers dags og fylgjast með úrslitum leikja og skráningu úrslita sem
og breytingum á dagskrá. Fara með
strákunum í mat (ath foreldrar geta skipst á 2 matarkort á lið fyrir
fullorðna). Sjá um að stýra liðinu inn á vellinum í samvinnu við þjálfara sem
ná ekki að stýra öllum leikjum. Ágætt að liðstjóri hafi eitthvað vit á fótbolta
og þeim leikreglum sem gilda J þó er það ekki skilyrði. Liðstjóri sér um upphitun
liðsins og ágætt að miða við að drengirnir stilli sér upp í beina röð við
hliðina á marki áður en þeir labba inn á völlinn. Við ætlum að vera KR til sóma
innan vallar sem utan (sérstök verðlaun veitt fyrir það – stór bikar) og
liðstjóri ber ábyrgð á sínum liðsmönnum.
Nestisstjóri Ágætt að nestissjórar séu tveir.
Þeir sjá um að smyrja samlokur og skera ávexti og taka með hluti sem því
fylgja, bretti hnífa og fl. Ágætt að hafa samlokugrill, gefa þeim ávexti milli
leikja og grilla frekar samlokur í lengri hléum. Allt er þetta þó bara
smekksatriði og ágætt að finna út þarfir liðsmanna á föstudeginum. ATH nestisstjórar þurfa að sjá til þess á
föstudeginum að drengirnir fái samlokur og ávexti í hádeginu má jafnvel áður en
skrúðgangan byrjar. Þetta er ansi knappur tími, skrúðganga og setning og svo
hefst keppnin. Þeir vakna allir eldsnemma og borða morgunmat fyrir klukkan
8.
Næturvörður= A.MK 2 næturverðir þurfa að gista
með þessum litlu KR krúttum. Að auki er gert ráð fyrir því að foreldrar aðstoði
við það að koma sínum dreng í ró. Við fáum sennilega 4 stofur þ.e. 2 lið í
hverri stofu. Það getur verið meira en að segja það að koma 20 strákum 6—8 ára
í ró þegar allt er á yfirsnúningi af spenningi. Næturverður verða að hafa símanúmer
foreldra „sinna“ drengja (liðsmanna) svo hægt sé að hringja ef einhver verður
nú lítill í sér. Næturverðir sjá um að fara í morgunmat með sínu liði allt
eftir því hvenær keppni hefst. Gert er ráð fyrir því að þeir sem ekki byrja að
keppa fyrr en t.d. eftir hádegi á laugardegi fari seinna í morgunmatinn.
Skemmtanastjóri Sér um að skipuleggja eitthvað fyrir
strákana að gera milli leikja í samráði við Liðstjóra. Hugmyndir t.d. fara í sund (ókeypis fyrir keppendur),
fjöruferð, á leikvelli bæjarins eða einhverjar ævintýraferðir í nágrenninu.
Horfa á aðra KR leiki og styðja og syngja KR lögin (ekki seinna vænna en að
þessir ungu piltar og fótboltamenn framtíðarinnar, læri helstu slagara eins og KR lagið sjálft https://www.youtube.com/watch?v=u3aGA18VNyc&list=PLCJl2QtA4GTittlN4icLZSgvbxRRVbY4g og fleiri góð lög J.
Stuðningsmaður #1 Sér um að styðja og hvetja liðið til
dáða og stýra foreldrum á hliðarlínunni. Við ætlum að vera góð fyrirmynd,
styðja og vera jákvæð, köllum „áfram KR“,“ koma KR“ , ekki hrópa inn á völlinn á einn dreng. Liðstjórar stýra liðinu við hin erum á
hliðarlínunni og styðjum strákana og hvetjum á uppbyggjandi hátt. Það er ekki
verra að syngja KR lög og reyna að hafa svolitla stemmningu í hópnum og hafa
gaman enda höfum við Unnið titilinn
oftast, deildina oftast oftar en allir aðriiir! Gott og gaman að syngja
eins oft og þurfa þykir, hvort sem er þegar verið er að horfa á aðra leiki eða
matsal eða út á götu.
Rútustjóri Gott að miða við að 1-2 foredrar
fylgi sínu liði í rútunni. Rútustjóri sér um að halda liðsmönnum saman þegar á
gististaði er komið.
Tékklisti fyrir
strákana
Verður sendur fljótlega. Hefur reynst mjög vel að fá
upplýsingar um bara allt sem þarf að muna eftir fyrir drengina og okkur
foreldra.
·
1-2
íþróttagallar
·
2-3
bolir
·
1
þægilegar buxur (kósýbuxur)
·
2
sokkar
·
2
fótboltasokkar (svartar)
·
KR
stuttbuxur
·
KR
keppnistreyja (þeir sem ekki eiga treyju fá lánaða)
·
Flíspeysa
(66 þeir sem eiga slíka)
·
Gammósíur
(svartar helst)
·
Rúllukragabolur
eða annar langerme undirbolur undir keppnistreyju
·
Regngalli
·
Húfa
og vettlingar (KR húfa þeir sem eiga annars helst svört)
·
Fótboltaskór
takkaskór
·
Íþróttaskór
·
Sundföt
og handklæði
·
Lítill
bakpoki/sundpoki
·
Náttföt
·
Nærbuxur
·
Tannbursti
·
Einbreið
dýna/vindsæng
·
Svefnpoki/sæng
·
Koddi
·
Vatnsbrúsi
·
Sólarvörn
·
Spil,
blöð og bækur, fótboltaspil
Ath að gefnu tilefni er
ekki gert ráð fyrir spjaldtölvu eða símum eða öðrum tölvuspilum við erum komin
á Akranes til að spila fótbolta og tala um fótbolta
Tékklisti fyrir
foreldra -Hvert lið þarf að sjá til þess að með í för sé
·
Kassi
eða handhægur poki undir nesti
·
Þurrkugrind
ef það rignir mikið
·
Hitabrúsi
fyrir kaffi og/eða kakó
·
Eplaskeri
·
Bretti
·
Hnífur
·
Kvöldkaffi
(laugardagskvöld) sjá hér að framan
·
Teppi
og stólar (ekki nauðsynlegt)
·
Sólarvörn
því það verður brakandi blíða
Enginn fylgdarmaður
Foreldrar og forráðamenn
bera að sjálfssögðu ábyrgð á sínum drengjum. Ef einhver einhverra hluta vegna
kemst ekki með hluta helgarinnar þá viljum við gjarnan fá upplýsingar um það.
Nauðsynlegt er að semja við aðra foreldra í liðsmannahópnum og biðja um að vera
þá þeim dreng innan handar.
Að lokum
Að lokum hvetjum við alla foreldra til að fara inn á heimsíðu
Norðurálsmótsins http://kfia.is/norduralsmot/ en þar má
finna ágætar upplýsingar um allt er við kemur mótinu. Á forsíðunni verða til að
mynda birt niðurröðun liða í riðla á föstudeginum og þarna birtast úrslit svo
mikilvægt er að fylgjast vel með þeim um helgina.
Að lokum minnum við alla foreldra og forráðamenn að sýna gott
fordæmi taka gleðina og góða skapið með við skulum verða börnunum okkar og KR til sóma.
Með KR kveðju, KR undirbúningsnefnd
16 júní 2014
08 júní 2014
Sumaræfingar
Kæru foreldrar.
Eins og áður hefur komið fram þá verða æfingarnar í sumar fjórum sinnum í viku á mán-fimmt. Yngra árið frá 13:00-14:00 og eldra árið frá 14:00-15:00.
Fyrsta æfingin verður þriðjudaginn 10.Júní.
KR kveðja.
Atli
Eins og áður hefur komið fram þá verða æfingarnar í sumar fjórum sinnum í viku á mán-fimmt. Yngra árið frá 13:00-14:00 og eldra árið frá 14:00-15:00.
Fyrsta æfingin verður þriðjudaginn 10.Júní.
KR kveðja.
Atli
04 júní 2014
Skagamót lið.
Kæru foreldrar.
Þá erum við þjálfararnir búnir að setjast niður og raða í liðin fyrir Norðurálsmótið.Við erum með 3 lið af yngra árinu og 5 lið af eldra árinu og því eru aðeins fleiri í hverju liði hjá yngra árinu.Ég hef ekki fengið upplýsingar um hvað deildirnar heita hjá skagamönnunum og því mun ég bara nefna liðin KR 1,2,3 o.s.frv hérna núna og svo skýrist það hvað deildirnar heita von bráðar.
Liðin.
KR 1(Eldri) Jakob,Hannes,Konráð,Aron,Arnar Kári,Níels,Hilmir og Jón Ívar.
KR 2 (Eldri) Óliver Nói,Viktor Orri,Gunnar Magnús,Ari,Hrafn Ingi,Lars,Ottó og Tristan.
KR 3 (Eldri) Fjölnir,Jökull Ari,Antoine,Óskar,Teitur,Dagur,Óðinn,Pétur og Björn Darri.
KR 4(Yngri) Jón Arnar,Jón Ernir,Magnús,Logi F,Auðunn,Atli Heiðar,Tómas Aron,Kristinn Kolur,Kristján Þórbergur og Sverrir Arnar.
KR 5 (Eldri) Trostan,Sölvi,Ísar,Hjalti,Siggi P,Jóhann Jökull,Jón Breki og Þorkell.
KR 6 (Eldri) Snorri,Hrafnkell,Þórður,Hlynur,Tómas F,Hjálmar,Guðmundur Kr,Viktor Óli og Tryggvi.
KR 7 (Yngri) Audric,Gunnar Jarl,Huginn,Jóakim,Kormákur Ari,Oddur Alvar,Atli Hrafn,Matti,Stefán Snær og Kári.
KR 8 (Yngri) Starri,Oddur S,Elías,Þorsteinn Máni,Jóhann Á,Anton,Kormákur Krummi,Guðmundur Ó,Duncan,Isac Krummi og Logi Þ.
Að lokum minni ég á fundinn á morgun fimmtudag klukkan 20:30 þar sem við förum yfir hlutverkin og annað.
KR kveðjur.
Atli
Þá erum við þjálfararnir búnir að setjast niður og raða í liðin fyrir Norðurálsmótið.Við erum með 3 lið af yngra árinu og 5 lið af eldra árinu og því eru aðeins fleiri í hverju liði hjá yngra árinu.Ég hef ekki fengið upplýsingar um hvað deildirnar heita hjá skagamönnunum og því mun ég bara nefna liðin KR 1,2,3 o.s.frv hérna núna og svo skýrist það hvað deildirnar heita von bráðar.
Liðin.
KR 1(Eldri) Jakob,Hannes,Konráð,Aron,Arnar Kári,Níels,Hilmir og Jón Ívar.
KR 2 (Eldri) Óliver Nói,Viktor Orri,Gunnar Magnús,Ari,Hrafn Ingi,Lars,Ottó og Tristan.
KR 3 (Eldri) Fjölnir,Jökull Ari,Antoine,Óskar,Teitur,Dagur,Óðinn,Pétur og Björn Darri.
KR 4(Yngri) Jón Arnar,Jón Ernir,Magnús,Logi F,Auðunn,Atli Heiðar,Tómas Aron,Kristinn Kolur,Kristján Þórbergur og Sverrir Arnar.
KR 5 (Eldri) Trostan,Sölvi,Ísar,Hjalti,Siggi P,Jóhann Jökull,Jón Breki og Þorkell.
KR 6 (Eldri) Snorri,Hrafnkell,Þórður,Hlynur,Tómas F,Hjálmar,Guðmundur Kr,Viktor Óli og Tryggvi.
KR 7 (Yngri) Audric,Gunnar Jarl,Huginn,Jóakim,Kormákur Ari,Oddur Alvar,Atli Hrafn,Matti,Stefán Snær og Kári.
KR 8 (Yngri) Starri,Oddur S,Elías,Þorsteinn Máni,Jóhann Á,Anton,Kormákur Krummi,Guðmundur Ó,Duncan,Isac Krummi og Logi Þ.
Að lokum minni ég á fundinn á morgun fimmtudag klukkan 20:30 þar sem við förum yfir hlutverkin og annað.
KR kveðjur.
Atli
03 júní 2014
Norðurálsmót -Foreldrafundur
Sæl öll kæru foreldrar,
Minnum á foreldrafund vegna Norðurálsmótsins á fimmtudagskvöld klukkan 20:30. Mikilvægt er að foreldrar mæti á fundinn. Á fundinum verður farið yfir skipulag mótsins og þátttöku foreldra.
KR kveðja frá fulltrúum foreldra og þjálfara
Minnum á foreldrafund vegna Norðurálsmótsins á fimmtudagskvöld klukkan 20:30. Mikilvægt er að foreldrar mæti á fundinn. Á fundinum verður farið yfir skipulag mótsins og þátttöku foreldra.
KR kveðja frá fulltrúum foreldra og þjálfara
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)